Skírn & nafngjöf
Kynntu þér úrvalið af skírnar- og nafngjafatertum frá Tertugalleríinu. Þessi fyrsta stórveisla sem haldin er fyrir nýjan einstakling vegna nafngjafar markar upphafið að óskrifaðri framtíð. Framtíð sem er full af tækifærum og gæfu.
Gómsæt og girnileg skírnarterta, eða terta fyrir nafngjöf, er falleg á veisluborðið og sérlega á þessum merkisdegi. Bættu við klassískum brauðtertum eða gómsætu og gullfallegu smurbrauði að dönskum hætti. Maður gerir allt fyrir nýja fjölskyldumeðliminn. Láttu hugarflugið ráða för.
Best er að sækja Marsípantertu sama dag og til stendur að bera hana fram. Til að tryggja bestu gæði er gott að geyma Marsípantertuna í kassanum sem hún kemur í. Rétt er að benda á að ekki er ráðlegt að geyma þær úti þar sem þær þola ekki mikinn raka. Það er alltaf hætta á því að hitastig sveiflist sem hefur áhrif á gæði Marsípantertunnar.
Skírnar- og nafngjafatertur Tertugallerísins eru glæsilegar gæðatertur á góðu verði. Skoðaðu og pantaðu.