Heillaðu gestina - veldu þínar uppáhalds snittur og smurbrauð

Það skiptir ekki máli hvert tilefnið er, gómsætt og gullfallegar snittur og smurbrauð frá Tertugallerí er alltaf frábær hugmynd. Ekta smurbrauð að dönskum hætti veitir ekki aðeins orku. Það kemur sköpunarkraftinum af stað. Í veislum er smurbrauðið umræðuefni, það vekur upp minningar og veitir gleði. Smurbrauð Tertugallerísins er gert af listfengi og aðeins úr úrvalshráefnum. Smurbrauð er tilvalið við hvert tækifæri; í hádegis eða kvöldmat, á  fundinn, í veisluna, eða í árbítsboð með vinum og ættingjum.  Láttu hugarflugið ráða för.

Þú getur valið um heilar eða hálfar sneiðar og snittur af mörgum tegundum sem hver er annarri gómsætari. Heillaðu gestina eða fundarfólkið  en bættu smá sætu með - Skoðaðu Smástykkin okkar.