Alvöru brauðterta best af öllu

Útgefið af Helga Guðrún Jónasdóttir þann

Brauðtertur frá Tertugalleríinu á veisluborði

Brauðtertur hafa smám saman verið að endurheimta fyrri virðingarsess, en þær nutu feikilegra vinsælda hér á árum áður eða um það leyti sem amma var ung. Þetta litríka kaffimeðlæti þykir orðið ómissandi á ekta fermingarhlaðborð, þar sem góð brauðterta eykur ekki aðeins fjölbreytileika borðsins heldur lyftir hún því einnig upp í samspili við sætari hluta þess. Það skemmtilega við þetta er að mörgum finnst kökurnar bragðast jafnvel enn betur í bland við þennan ósæta valkost.

Brauðterturnar hjá Tertugalleríi Myllunnar eru frá 16 og upp í 35 manna og fást í þremur mismunandi útfærslum, með skinku, rækjum eða túnfiski. Þá eru einnig í boði rúllutertubrauð með pepperoni eða skinku og aspas sem eru klár beint í ofninn til upphitunar.

Við megum síðan til með að bæta hér við að smáar bollakökur með íslenska fánanum eða nafni fermingarbarnsins geta gert veisluborðið enn hátíðlegra.

Við viljum síðan minna á að panta tímanlega og njóta af fremsta megni þess að undirbúa veisluna. Afgreiðslufrestur getur lengst eftir því sem gengið er frá pöntun með skemmri fyrirvara.

Kynntu þér pöntunar- og afgreiðslutíma Tertugallerís Myllunnar


Deila þessari færslu



← Eldri færsla