Er afmælisveisla framundan?
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Við hjá Tertugalleríinu vitum að það er að mörgu að huga þegar kemur að skipulagningu í aðdraganda afmælis. Hvort sem fagna á stórafmæli í stórum hópi eða halda litla veislu þá er terta frá Tertugalleríinu tilvalin á veisluborðið. Við erum alltaf tilbúin að liðsinna þér í afmælisundirbúningnum. Hjá Tertugalleríinu er auðvelt að panta og enn auðveldara að bjóða upp á.
Súkkulaðiterta, bollakökur og kleinuhringir fyrir afmælið
Góð súkkulaðiterta með nammi er vinsæl og kætir ávallt bragðlaukana. Súkkulaðiterturnar frá Tertugalleríinu eru sígildar, henta flestum tilefnum og eru af ýmsum stærðum og gerðum. Hægt er að fá þær fyrir 15 manns (20x30cm), 30 manns (40,4x29cm) og 60 manns (58x39cm). Þá er jafnvel hægt að sérpanta enn stærri tertur.
Til að gera súkkulaðitertuna persónulegri er hægt að prenta mynd að eigin vali til að hafa á tertunni og það er líka hægt að setja texta á súkkulaðitertuna. Súkkulaðiterturnar okkar hafa bragðgóðan súkkulaðitertubotn með súkkulaði, skreytt með M&M, hlaupböngsum og brúnu ljúffengu smjörkremi á kantinum. Við setjum súkkulaðitertuna á fallegan gylltan pappa sem auðveldar þér að bera fram og er einstaklega fallegt á veisluborði.
Við bjóðum upp á ljúffengar bollakökur sem svíkja engan. Bollakökurnar koma sextán saman í öskju, þú getur fengið þær bláar eða bleikar og það fylgir þeim mikil stemning í öllum afmælum. Þú getur líka pantað bollakökur með mynd af eigin vali, sem koma átta saman í öskju.
Við bjóðum einnig upp á úrval litríka og ljúffenga kleinuhringja sem gleðja bragðlaukana. Hvort sem þú vilt litla bita með fersku bragði eða mýkt og karamellu í einum munnbita, þá er eitthvað fyrir alla í kleinuhringjalínunni okkar. Litlu kleinuhringirnir koma 30 stykki saman á bakka og stóru kleinuhringirnir koma 10 stykki saman í kassa.
Litlir kleinuhringir með sítrónubragði og skrauti eru léttir og sólríkir með fínlegu sítrónubrosi.
Litlir kleinuhringir með bláberjabragði og skrauti eru mildir og safaríkir með sumri í hverjum bita.
Litlir kleinuhringir með appelsínubragði og skrauti eru ferskir í bragði og vekja dísæta athygli.
Litlir bleikir kleinuhringir með jarðaberjabragði og jarðaberjasykurperlum eru gómsætir og sérstaklega fallegir á veisluborðið.
Litlir kleinuhringir með súkkulaði eru dásamleg súkkulaðiveisla fyrir bragðlaukana og slá alltaf í gegn.
Kleinuhringir með karamelluglassúr eru mjúkir og deigkenndir með ríku karamellulagi sem bráðnar í munni.
Kleinuhringir með brúnum glassúr eru klassískir og dásamlega ljúffengir sem eru frábærir með rjúkandi kaffibolla eða ísköldu mjólkurglasi.
Á vefsíðu okkar eru óteljandi tertur og veisluveigar sem eru tilvaldar til að bjóða upp á þegar þú ert að fagna skemmtilegu tilefni eða gleðja þá sem þér þykir vænt um, en auðvitað er hægt að velja hvað sem er og nota hugmyndaflugið. Skoðaðu endilega fjölbreytta og ljúffenga úrval okkar hér!
Mundu bara að panta tímanlega!
Ferskbakað til að njóta samdægurs
Við hjá Tertugalleríinu viljum því ítreka að það er best að sækja pöntun sama dag og veislan er, þannig að þú bjóðir upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!
Pantaðu tímanlega
Tertugalleríið hefur í mörg ár boðið upp á gott úrval af frábærum veisluveigum á hagstæðu verði fyrir afmæli. Veldu þínar veisluveigar og leyfðu okkar að liðsinna þér við undirbúninginn. Við mælum með því að þú skoðir úrvalið okkar og pantar tímanlega.
Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.
Athugið að á álagstímum getur afgreiðslutími lengst.
Afhending og ábyrgð
Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.
Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.
Ef pöntun er einhverja hluta vegna ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.
Deila þessari færslu
- Merki: bollakökur, bollakökur með mynd, kleinuhringir, litlir kleinuhringir, súkkulaðiterta með íslenska fánanum, Súkkulaðiterta með mynd, Súkkulaðiterta með mynd nammi, Súkkulaðiterta með mynd nammi og texta