Notaleg jólastund í vinnunni

Útgefið af Helga Guðrún Jónasdóttir þann

Nú þegar nóvember er genginn í garð getum við loksins fundið í okkur jólabarnið og leyft okkur að hlakka til þessa einstaka tíma ársins þegar jólaólahlaðborð og jólatónleikar eru í boði og fyrstu jólalögin fara að hljóma á öldum ljósvakans.

Í hugum okkar er framundan sá tími sem miklvægast er að hleypa gleði og birtu í líf sitt. 

Vinnustaðir eru af öllum stærðum og gerðum og margir kjósa frekar að hafa kósí stund í vinnunni en að fara á jólahlaðborð á veitingastað.

Ef halda á jólahlaðborð í vinnunni þá er gott að eiga Tertugalleríið að. Hjá okkur fæst fullt af réttum sem henta vel með jólahlaðborðinu. Á aðventunni hefur verið vinsælt að panta hjá okkur kransakökur, kleinur og kleinuhringi og brauðrétti hvers konar eða salöt. Brauðtertur eru auðvitað rammíslenskar og henta vel með hlaðborðsréttum.



Deila þessari færslu



← Eldri færsla