Gerðu stóru stundina enn skemmtilegri og persónulegri með skrautskrift

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Kökur gegna lykilhlutverki á mögum af okkar stærstu hamingjustundum eins og brúðkaupi, skírn eða stórafmælum. Ástæðan fyrir þessu er einföld. Kökur gleðja. Þær gera lífið okkar skemmtilegra með munnfylli af hamingju og vellíðan og miðla þannig með ljúfu móti mikilvægi stundarinnar; að hittast og njóta þess að vera saman.

Kökur í einstökum og einlægum búningi

Kökuskreytingar laga kökuna að tilefninu og mynda þannig skiliin á milli hversdags og spari í kökugerð. Einn mikilvægasti liðurinn hér eru áletranir ásamt þeim skilboðum sem í þeim felast. Þetta er tækið sem gerir okkur kleift að færa kökuna í einstakan og um leið einlægan búning eða hvar væri stúdentskakan án nafns nýstúdentins og dagsetningarinnar, svo að lítið en mjög mikilvægt dæmi sé tekið.

Verkþekking á listrænum grunni

Á hinn bóginn er ekki öllum gefið að skrifa texta á kökur. Þetta er í eðli sínu sönn list sem útheimtir ekki aðeins verkþekkingu og reynslu heldur einnig ríkulegt ívaf af listrænum metnaði. Kökugerðarmeistarar sem náð hafa fullkomnum tökum á þessari list skrifa þannig með öxlunum en ekki úlnliðum og punkta upphafið af hverjum staf með sérhæfðum hætti til að festa smjörkremslínuna við yfirborð kökunnar. Síðan tekur við næmlega útfærð skrautskrift og bogadregnar skrautlínur eftir kúnstarinnar reglum sem fullkomna verkið.

Textinn þinn fullkomnar kökuna

Kökugerðarmeistarar Myllunnar hafa frá upphafi lagt mikinn metnað í kökuskreytingar af fremstu gerð, þar sem faglega gerðar áletranir móta endanlega ásýnd hinnar fullkomnu veisluköku.

Nýttu þér einstaka fagþekkingu okkar til að gera stóru viðburðina enn skemmtilegri og persónulegri með texta sem þú ákveður. Textinn fullkomnar kökuna og tiefnið svo vel.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla