Hræðilegar kökur og bitar fyrir Hrekkjavökuna

Útgefið af Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir þann

Hrekkjavaka hefur heldur betur fest sig í sessi á Íslandi og bíða margir (sérstaklega börnin) eftir þessum degi með mikilli eftirvæntingu. Núna styttist óðum í hrekkjavökuna sem er föstudaginn 31. október næstkomandi.

Hrekkjavaka er tilvalið tækifæri til þess að klæða sig upp og skemmta sér með börnum, samstarfsfélögum, vinum og vandamönnum og því er alveg upplagt að panta sér óhugnanlega góðar veitingar í takt við það.

Við hjá Tertugalleríinu verðum með sérstakar og hræðilega góðar tertur og bollakökur fyrir hrekkjavökuna þína. Nú hafa einnig bæst við hrekkjavöku skúffubitar með ógurlegum skreytingum sem koma 40 stk á bakka, tilbúnir að njóta fyrir stóra sem litla munna. Hrekkjavökuterturnar- og bollakökurnar hjá Tertugalleríinu eru hryllilega flottar og eru tilvaldar fyrir fyrirtæki sem vilja bjóða viðskiptavinum sínum og starfsfólki í hrekkjavöku-kaffiboð. Þær eru líka einstaklega hentugar í hrekkjavökuveisluna!

Hrekkjavökutertan er með ljúffengum einföldum súkkulaðitertubotn með súkkulaði, appelsínugulu smjörkremi á kantinum og skreytt með skuggalegri hrekkjavökumynd og nammi. Hrekkjavökutertuna er hægt að fá fyrir 15 manns (20x30cm) eða 30 manns (40,5x29cm).

Til að gera Hrekkjavökutertuna þína persónulegri er hægt að prenta mynd að eigin vali til að hafa á tertunni og það er líka hægt að setja texta á tertuna.

Einnig bjóðum við upp á einstaklega flottar og ljúffengar hrekkjavökubollakökur sem koma átta saman í öskju. Bollakökurnar eru með súkkulaðitertubotni, appelsínugulu smjörkremi og appelsínugulri mynd. Myndirnar eru prentaðar á gómsætan hágæða marsípan sem einfaldlega bráðnar í munninum. 

Auðveldaðu þér fyrirhöfnina í bakstrinum á hrekkjavökunni til að einblína á hrekkjavökuskreytingar og búninga og smelltu hér og skoðaðu það sem við höfum uppá að bjóða fyrir hrekkjavökuna!

Ferskbakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að best er að sækja pöntun sama dag og veislan eða tilefnið er, þannig að þið bjóðið upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!

Pantaðu tímanlega

Tertugalleríið hefur í mörg ár boðið upp á gott úrval af frábærum veisluveigum á hagstæðu verði. Veldu þínar veisluveigar og leyfðu okkar að liðsinna þér við undirbúninginn. Við mælum með því að þú skoðir úrvalið okkar og pantið tímanlega.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi. Athugið að á álagstímum getur afgreiðslutími lengst.

 


Deila þessari færslu



← Eldri færsla