Veldu bleikt fyrir Bleiku slaufuna
Útgefið af Helga Guðrún Jónasdóttir þann
Veldu bleikt og taktu þátt í að styrkja bleiku slaufuna.
Í tilefni af bleikum október býður Tertugallerí Myllunnar bleika súkkulaðitertu, bleikar bollakökur, litla bleika kleinuhringi og bleikar mini möndlukökur.
Með kaupum á þessum dásamlega bleiku kökum styður þú árlegt söfnunarátak Krabbameinsfélags Íslands, en 15% af verði þeirra rennur til Bleiku slaufunnar.
Bleiku terturnar eru með ljúffengum og þéttum súkkulaðibotni, skreyttar fagurbleiku kremi á hliðunum og með mynd af Bleiku slaufunni gerðri úr gæðamarsipani. Bleiku bollakökurnar eru ljúffengar með bleiku kremi og koma 16 stykki saman í kassa. Litlu bleiku kleinuhringirnir eru skreyttir jarðaberja sykurperlum og koma í 30 stykkja einingum á bakka. Bleiku mini möndlukökurnar eru sígildar og flauelsmjúkar og koma 20 stykki af þeim saman í kassa.
Dagana 12. til 21. október verður Bleika tertan jafnframt í boði hjá okkur, en hún er jafn ljuffeng og hún er glæsileg. Bleika tertan er 10-12 manna með tvöfaldan súkkulaðikökubotn og smjörkremi á milli. Þá er þessi sannkallaða hnallþóra fagurlega skreytt með bleiku smjörkremi og smarties ásamt mynd af bleiku slaufunni úr gæðamarsipani.
Veldu bleikt í október. Taktu þátt í að styrkja Bleiku slaufna með því að bjóða fjölskyldunni, viðskiptavinum og starfsfólki bleikar tertur og kökur með síðdegiskaffinu eða sem eftirrétt.
Smelltu hér og skoðaðu allt úrvalið okkar af bleikum kökum til stuðnings Bleiku slaufunni!
