Eurovision veisla Tertugallerísins

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann


Nú styttist óðum í Eurovision og er það ekki síður jafn hátíðlegt og fermingartímabilið sem nú er að ljúka. Óhætt er að segja að Eurovision sé fastur liður í íslenskri menningu og erum við hjá Tertugalleríinu með fjöldan allan af veitingum tilvöldum í Eurovision veisluna.
Komdu gestunum skemmtilega á óvart með tertu og bollakökum með mynd. Myndirnar eru prentaðar á gæða marsípan og myndin því fullkomlega neysluhæf. Taktu mynd, eða finndu hana í safninu þínu og sendu okkur. Skoðaðu allar okkur tertur með mynd hér!
Heillaðu gestina með litríkum og ljúffengum snittum. Tapas snitturnar okkar slá einfaldlega alltaf í gegn og eru þær tilvaldar í Eurovision veisluna. Við bjóðum upp á fimm mismunandi tegundir af tapas snittum en þar á meðal má að sjálfsögðu finna vegan valkost. Við bjóðum einnig upp á dásamlegar kokteilsnittur. Um er að ræða sjö gerðir af kokteilsnittum, þar á meðal tvo vegan valkosti.
Franska súkkulaðitertan okkar er alveg ómótstæðileg en tertan er þétt, mjúk og ótrúlega bragðgóð 15 manna terta. Skreytt af alúð með súkkulaðigeli, jarðaberjum, bláberjum og súkkulaðispónum.

Nógu mikið er í húfi fyrir Eurovision, auðveldaðu þér fyrirhöfnina og pantaðu veitingarnar frá Tertugalleríinu!

Pantaðu tímanlega
Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar. Ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi. Á miklum álagstímum, eins og yfir fermingar, er betra að gefa okkur eins langan fyrirvara og þú getur, til að öruggt sé að við getum annað þinni pöntun.
Athugaðu að afgreiðslufrestur getur lengst verulega á þessu tímabili. Tertugalleríið áskilur sér rétt til að loka fyrir pantanir ef fyrirliggur eftirspurn verði ekki annað. Tryggðu þér tertu í tíma. Pantaðu tímalega.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →