Leyfðu þér lúxus um páskana

Útgefið af Helga Guðrún Jónasdóttir þann

Gómsætir og girnilegir og í fallegum páskalitum. Lúxus bitar eru einfaldlega tilvaldir á kaffiborðið eða sem glæsilegur eftirréttur um páskana.

Lúxus bitar eru í boði 30 saman á bakka og skiptast í tíu kransabita, tíu makkrónukökur og tíu berjaskreyttar vatnsdeigsbollur með unaðslegri saltkaramellu. Bakkinn kostar kr. 4.590 sem samsvarar tæplega 138 krónum á hvern lúxus biti.

Lúxus bitarnir bjóða upp á litríkan og bragðgóðan kost á páskakaffiborðið. Þá er ekki síður um virklega skemmtilega tilbreytingu að ræða sem eftirréttur.

Þá eru einnig í boði 30 stykkja bakkar með sætum bitum eða tíu kókostoppum, tíu súkkulaðibitakökum og tíu berjaskreyttum vatnsdeigsbollum með rjóma. Verðið á bakkanum er kr. 3.360 eða 112 krónur hvert stykki.

Allar pantanir eru afgreiddar nýbakaðar hjá Tertugalleríi Myllunnar og geymast bakkarnir því vel í einn dag eða tvo daga í kæli.

Hvort langar þig meira í lúxus bita eða sæta bita um páskana? Þitt er valið.

 


Deila þessari færslu



← Eldri færsla