Segðu sumar með makkarónum

Útgefið af Helga Guðrún Jónasdóttir þann

Sumarið er tíminn á Íslandi. Litríkar og einstaklega ljúffengar makkarónur frá Tertugalleríi Myllunnar eiga því vel við þegar við fögnum sumarkomunni þann 23. apríl nk., enda er líklega fátt skemmtilegra en að hittast og njóta þess í sameiningu að bjartasta árstíðin gangi í garð.

Þá eru makkarónur einstaklega fallegar á borði og segja má að fátt fangi stemningu og birtu sumarsins mikið betur en þær. 

Segðu sumar með makkarónum frá Tertugalleríinu. Þær eru í sex ljúffengum bragðtegundum eða sítrónu, saltkaramellu, hindberja, vanillu, súkkulaði og pistasíu og kostar kassi með 35 kökum kr. 6.486.  

Að gefnu tilefni má svo rifja það upp hér, að makkarónur eru franskar að uppruna og búa fyrir vikið yfir ekta rómantískum eiginleikum eins og flest sem franskt er. Þessar fallegu smákökur eiga því einstaklega vel við þegar þig langar að tjá ást þína og gleði með þeim sem þú elskar.  

Kynntu þér makkarónur Tertugalleríins. Það er síðan vissara að ganga frá pöntun tímanlega, svo að þú getir sótt makkrónurnar á þeim tíma sem hentar þér. 

 

 

 


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →