Litlir, bjartir og svo sumarlegir kleinuhringir
Útgefið af Helga Guðrún Jónasdóttir þann
Fátt telst sumarlegra en litlu kleinuhringirnir okkar, en þessar hringlaga dásemdir eru ekki aðeins gómsætar á bragðið heldur er einnig einstaklega bjart yfir þeim.
Óhætt er því að segja að, að þessir litríku og bragðgóðu smáhringir eigi vel við á sumardeginum fyrsta, þann 23. apríl nk., þegar þjóðin fagnar því að bjartasti tími ársins sé genginn í garð.
Þá eru einnig í boði kleinuhringir í fulltri stærð, fyrir þau sem vilja, annað hvort með karamellu- eða súkkulaðiglassúr.
Það verður síðan að segjast eins og er, að enda þótt kleinan hafi lengi verið eftirsótt með kaffinu, gefa kleinuhringir vinældum hennar ekkert eftir. Framboð hefur endan sjaldan verið meira af þessum gljáðu og skreyttum hringjum sem gleðja jafnt börn sem fullorðna.
Kynntu þér framboðið hjá Tertugalleríinu af kleinuhringjum. Bakkinn með 30 litlum og sumarlegum gulum, bleikum eða berjabláum smáhringjum er á kr. 2.810.
Sláðu í gegn með litlu björtu kleinuhringjunum á sumardeginum fyrsta og skreyttu kaffiborðið um leið með glaðlegum sumarlitum. Við minnum á að panta tímanlega, svo að þú getir sótt pöntunina þegar þér hentar. 